Blekhylki.is / Smáralind 2 hæð – sala@blekhylki.is  kt. 690708-0270  Vsknr. 98854

Blekhylki.is er lén og vörumerki í eigu og á vegum Blekhylki-Simaveski ehf.

Blekhylki.is (hér eftir kallað seljandi) áskilur sér rétt til að hætta við og afturkalla sölu eða pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga á heimasíðu, eða vörutegund er ekki til, án fyrirvara eða af öðrum ótöldum ástæðum. Seljandi áskilur sér rétt til að staðfesta pantanir símleiðis eða með tölvupósti.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti.
Sendingarkostnaður leggst á vöru kr. 500 ef vörukaup ná ekki kr. 15.000.-. Ef vörukaup eru hærri en kr. 15.000.- leggst enginn sendingarkostnaður kr. 500 á vöruna. Einnig er hægt að sækja vöru í Smáralind en velja þarf þann möguleika sérstaklega í kaupunum og fellur þá sendingarkostnaður niður.

Afhending vöru

Pantanir sem gerðar eru fyrir kl. 14:00 á virkum dögum eru að jafnaði afgreiddar samdægurs. Til þess að fá vöru senda beint heim þarf að biðja sérstaklega um það með því að senda okkur tölvupóst á sala@blekhylki.is. Þessi Þjónusta er eingöngu í boði á höfuðborgarsvæðinu og pöntun er hærri en kr. 15.000.-

Pantanir eru póstlagðar sem almenn órekjanleg bréf (nema um annað sé beðið).
Íslandspóstur dreifir sendingum innan þriggja virkra-daga frá póstlagningardegi.  Athugið! – Geta því liðið allt að 4 virkir daga frá pöntun að afhentingu.

Um sendingar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunar.  Samkvæmt þessu ber seljandi enga ábyrgð á töfum á afhendingu, týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er afhent dreifingaraðila er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skipta- eða skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun á sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu og óskemmdu umbúðum.  Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Í þessum tilvikum áskilur seljandi sér rétt til að gefa út inneignarnótu í stað endurgreiðslu. Kaupandi vörunar skal sjálfur bera kostnað af flutnings- og póstburðargjöldum við endursendingu á vöru til seljanda. Endursendi kaupandi skilavöru á kosnað seljanda áskilur seljandi sér rétt til þess að draga sendingarkosnað frá endurgreiðslu.

Gölluð vara eða röng afhenting

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í stað þeirra gölluðu eða full endurgreiðsla. Kaupandi vörunar verður að geta sýnt seljanda fram á að vara sé sannlega gölluð. Seljandi greiðir fluttningkosnað í tilvikum sem þessum.  Sé um gallaða vöru að ræða getur kaupandi krafist endurgreiðslu vörunnar. Í slíkum tilfellum áskilur seljandi sér rétt til að fá vöru endursenda áður en sú endurgreiðsla fer fram.

Að öðru leiti vísast til kaupa einstaklinga í lögum um neytendakaup nr. 48/2003 og kaupa lögaðila í lögum um lausafjákaup nr. 50/2000.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Skilmálar þessir er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.