Skip to main content

Blekhylki.is / Smáralind 2 hæð – sala@blekhylki.is  kt. 600820-2300,  Vsknr. 158870

Blekhylki.is er lén og vörumerki í eigu og á vegum Lumon ehf.

Blekhylki.is (hér eftir kallað seljandi) áskilur sér rétt til að hætta við og afturkalla sölu eða pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga á heimasíðu, eða vörutegund er ekki til, án fyrirvara eða af öðrum ótöldum ástæðum. Seljandi áskilur sér rétt til að staðfesta pantanir símleiðis eða með tölvupósti.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti.

Við vörukaup í vefverslun Blekhylki.is eru pantanir afgreiddar eins fljótt og auðið er. Oftast samdægurs eða daginn eftir.

Pantanir eru sendar með Íslandspósti og fer sendingarkostnaður eftir völdum afhendingarleiðum og getur sendingarkostnaður tekið breytingum í samræmi við gjaldskrá Íslandspósts hverju sinni.

Einnig er boðið uppá að sækja vöru í verslun Blekhylki.is í Smáralind án endurgjalds.

Afhending vöru

Pantanir sem gerðar eru fyrir kl. 12:00 á virkum dögum eru eftir fremsta megni afgreiddar samdægurs. Pantanir sem gerðar eru eftir þann tíma eru afgreiddar næsta virka dag.

Um sendingar með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunar.  Samkvæmt þessu ber seljandi enga ábyrgð á töfum á afhendingu, týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er afhent dreifingaraðila er tjónið á ábyrgð kaupanda.

 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skipta- eða skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun á sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu og óskemmdu umbúðum.  Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Í þessum tilvikum áskilur seljandi sér rétt til að gefa út inneignarnótu í stað endurgreiðslu. Kaupandi vörunar skal sjálfur bera kostnað af flutnings- og póstburðargjöldum við endursendingu á vöru til seljanda. Endursendi kaupandi skilavöru á kosnað seljanda áskilur seljandi sér rétt til þess að draga sendingarkosnað frá endurgreiðslu.

 

Gölluð vara eða röng afhenting

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í stað þeirra gölluðu eða full endurgreiðsla. Kaupandi vörunar verður að geta sýnt seljanda fram á að vara sé sannlega gölluð. Seljandi greiðir fluttningkosnað í tilvikum sem þessum.  Sé um gallaða vöru að ræða getur kaupandi krafist endurgreiðslu vörunnar. Í slíkum tilfellum áskilur seljandi sér rétt til að fá vöru endursenda áður en sú endurgreiðsla fer fram.

Að öðru leiti vísast til kaupa einstaklinga í lögum um neytendakaup nr. 48/2003 og kaupa lögaðila í lögum um lausafjákaup nr. 50/2000.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Skilmálar þessir er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.